Storytel Original kynnir - Sönn íslensk sakamál

Share:

Listens: 0

Sönn íslensk sakamál

True Crime


Sjónvarpsþættirnir Sönn íslensk sakamál nutu mikilla vinsælda á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Sigursteinn gegndi hlutverki þular þáttanna, ásamt því að vera umsjónarmaður og handritshöfundur þeirra í upphafi, en í áranna raðir hefur rödd hans orðið einkennandi fyrir umfjöllun um íslensk sakamál. Nú hafa Sönn íslensk sakamál öðlast nýtt líf í hljóðbókarformi Storytel Original og í þessari spennuþrungnu seríu fer Sigursteinn yfir bæði ný og gömul mál þar sem ekki eru öll kurl komin til grafar. Fyrsti þátturinn er birtur á opnum hlaðvarpsveitum en framvegis verður aðeins hægt að nálgast þættina á Storytel. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.